Hópur 21-28 maí

8 Days

Ferðin okkar

Þá er loksins komið að því að við getum boðið uppá draumaferðina þína hvort sem þú vilt ferðast ein, með vinkonu eða bara konunni sem þér stendur næst. Það sem skiptir máli er að njóta, slaka og hlaða batteríin í frábærum félagsskap á fallegri eyju í napoliflóanum. Í maí og júní 2023 bjóðum við uppá vikuferð til Ischia með fararstjórunum Berglindi og Kolbrúnu sem kynna ykkur fyrir þessum fallega stað sem býður uppá marga möguleika í fallegu óspilltu umhverfi.

Um okkur

Berglind Guðmundsdóttir er eigandi hinnar vinsælu vefsíðu GulurRauðurGrænn&salt sem hefur fært landsmönnum einfaldar og bragðgóðar uppskriftir frá árinu 2012. Berglind hefur gefið út matreiðslubækur, haldið matreiðslunámskeið  og sjónvarpsþætti um mat og matargerð. Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að ferðast og kynnast fólki út frá matarmenningu hvers lands fyrir sig. Berglind er mikil áhugamanneskja um Ítalíu og gerði ferða- og lífstílsþættina Aldrei ein þar sem hún flakkar um Sikiley og sýndi okkur eitthvað af því besta sem eyjan hefur upp á að bjóða. Þegar Berglind kom til Ischia var það ást við fyrstu sýn og er spennt fyrir því gefa öðrum konum tækifæri að upplifa það sama og hún gerði á þessari dásamlegu eyju. Kolbrún Dögg Eggertsdóttir er fædd og uppalin á Selfossi og hefur alltaf haft ástríðu fyrir að ferðast og kynnast nýjum menningarsiðum og fólki. Árið 2000 dreif ævintýraþörfin hana til London til að starfa sem au-pair og það var þar sem hún varð ástfangin af myndarlegum ítala frá eyjunni Ischia. Tveimur árum seinna lét hún ástina ráða og flutti út til Ítalíu þar sem hún býr í dag (eini íslendingurinn) ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum þeirra. Kolbrún og Carmine, eiginmaður hennar, eiga ferðaskrifstofuna InfoIschia og hlakka þau til að taka á móti íslendingum á Ischia. Berglind og Kolbrún kynntust sumarið 2022 á Ischiu eftir að sameiginleg vinkona þeirra leiddi þær saman og eftir Hugo Spritz aperitivo og mikinn hlátur við sólsetur varð þetta frábæra litríka samstarf til.

From €1.290
/ Fullorðinn í Tvíbýli
From €1.790
/ Tveggja manna herbergi fyrir einstakling